Snjósystirin
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 190 | 3.890 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 190 | 3.890 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Júlían á afmæli á aðfangadag svo það er ekkert skrítið að jólin séu í uppáhaldi hjá honum. Yfirleitt er þetta besti dagur ársins; heimilið angar af piparkökum og mandarínum, það snarkar í arninum, allir eru í góðu skapi og fullir eftirvæntingar. En andrúmsloftið í ár er öðruvísi en áður því Júní stórasystir hans dó í sumar. Fjölskyldan er þjökuð af sorg og Júlían heldur jafnvel að það komi engin jól.
Dag einn í desember vingast hann við hina lífsglöðu Heiðveigu. Hún brosir breiðar en nokkur sem hann hefur kynnst, hlátur hennar er hár og smitandi og hún finnur upp á alls konar fjöri. En það er eitthvað dularfullt við hús fjölskyldu hennar. Gamall og skuggalegur maður er þar oft á vappi – af hverju er hann svona reiður? Og hvað hefur Heiðveig að fela?
Snjósystirin er hugljúf jólasaga í 24 köflum, ævintýraleg og heillandi bók fyrir alla fjölskylduna.
Silja Aðalsteinsdóttir þýddi.
Lisa Aisato myndskreytti.
2 umsagnir um Snjósystirin
Elín Pálsdóttir –
„Óvenju spennandi jóladagatal! Þessi bók mun lifa margar kynslóðir lesenda.“
VG, Noregi
Elín Pálsdóttir –
„Saga Maju Lunde er falleg og hrífandi. Teikningar Lisu Aisato eru óviðjafnanlegar.“
Dagbladet, Noregi