Snaran
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu | |
Kilja | 2009 | 120 | 2.290 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu | |
Kilja | 2009 | 120 | 2.290 kr. |
Um bókina
Skáldagan Snaran vakti mikla athygli þegar hún kom út árið 1968. Sagan er eintal – eða öllu heldur samtal þar sem rödd annars þátttakandans heyrist ekki – og er frásagnarformið einstakt í íslenskum bókmenntum.
Við erum stödd í óljósri framtíð. Stóriðja er helsti atvinnuvegurinn og erlent fjármagn og vinnuafl hefur flætt inn í landið. Nöpur ádeila sögunnar kemur ekki síst fram í mannlýsingu sögumannsins, sópara í verksmiðju, orðum hans, skoðunum og viðbrögðum. Hann segir sögu sína og þjóðarinnar, allt frá komu erlends herliðs á stríðsárunum og þeim þjóðfélagsbreytingum sem henni fylgdu og rekur hana allt til samtíma sögunnar. Er sá tími kannski runninn upp nú?
Jakobína Sigurðardóttur (1918–1994) var fædd í Hælavík á Hornströndum en var lengst af ævinnar húsmóðir í Garði í Mývatnssveit. Hún var einn virtasti rithöfundur landsins og sendi frá sér skáldsögur, smásögur og ljóðabækur. Þrjár skáldsagna hennar, Dægurvísa, Snaran og Lifandi vatnið voru valdar sem framlag Íslands til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.
Snaran hefur verið ófáanleg um árabil en kemur nú í Klassíska kiljuklúbbnum.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 3 klukkustundir og 17 mínútur að lengd. Arnar Jónsson les.
2 umsagnir um Snaran
Elín Pálsdóttir –
„Þetta er mjög merkileg bók .. mér finnst þetta óskaplega vel gert … algjörlega meistaraleg.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan
Elín Pálsdóttir –
„[Jakobína] var náttúrulega algjörlega makalaus höfundur, að hún skuli ekki hafa fengið þann sess að vera talinn einn merkasti höfundur íslendinga á 20. öld það er bara einfaldlega vegna þess að hún var kona norður í landi. … hún var ekki nógu fín fyrir bókmenntahyskið í Reykjavík.“
Páll Baldvin Baldvinsson / Kiljan