Skvísur – ekki með á nótunum
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2017 | 46 | 1.290 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2017 | 46 | 1.290 kr. |
Um bókina
Signý og Begga eru flottar skvísur á framhaldsskólaaldri sem allir strákar eru skotnir í. Útlitið er það eina sem skiptir máli fyrir vinkonurnar og fiskarnir eru svo margir í sjónum að þær geta valið þá bestu úr.
Agnes er vinkona þeirra beggja þrátt fyrir að vera bara venjuleg stelpa, en hún reynir eins og hún getur að falla inn í skvísuhópinn. Hún hefur ekki útlitið með sér og hefur önnur áhugamál en stráka, þótt hún vilji ekki vera eftirbátur þeirra hvað ástarmálin varða.
Fyrir vikið verður hún skotspónn Signýjar og Beggu sem nota hvert tækifæri til að gera lítið úr henni. Agnes er meðvituð um það og heldur að það sé þess virði að færa fórnir til að verða viðurkennd meðal vinsælu stelpnanna. En það eru fleiri en hún, af báðum kynjum sem þurfa að þola andstyggð vinkvennanna tveggja.