Skúli Skelfir fær lús

Barna- og unglingabækur

Skúli Skelfir fær lús

eftir Francesca Simon og Tony Ross

2003 · 96 bls.

Veldu snið

1.490 kr.

Til á lager

Um bókina

Skúli er grallari af guðs náð og svo mikill óþekktarangi að hann er eiginlega hálfgerð plága. Foreldrar hans reyna vissulega að siða hann til – en án nokkurs árangurs. Skúla hefur þó hvarvetna tekist að sigra hug og hjörtu lesenda jafnt sem gagnrýnenda með stríðni sinni og strákapörum.

Fyrstu tvær bækurnar um Skúla skelfi komu út á síðasta ári og hlutu góðar viðtökur. Óborganleg skemmtun fyrir krakka á aldrinum 5-9 ára.

Höfundur bókanna um Skúla skelfi er breski höfundurinn Francesca Simon en bækur hennar um þennan grallara hafa notið gríðarlegra vinsælda víða um heim.

Karfan þín

Valmynd