Sjáandi

Skáldverk

Sjáandi

eftir Ester Hilmarsdóttir

2025 · 288 bls.

Veldu snið

7.190 kr.

Til á lager

Um bókina

Þegar dularfull spákona úr austri birtist í friðsælum dal í íslenskri sveit fara ævintýralegir hlutir að gerast og allt sem áður var fer úr skorðum. Saman við komu spákonunnar fléttast barátta kotbænda við auðvaldið úr nærliggjandi kaupstað, hrifnæmni fjósastráks, forboðnar ástir heimasætu og förukona sem enginn veit hvort er að koma eða fara.

Ester Hilmarsdóttir er bóndadóttir úr Aðaldal. Hún hlaut tilnefningu til Fjöruverðlaunanna fyrir ljóðabók sína Fegurðin í flæðinu en Sjáandi er fyrsta skáldsaga hennar. Hún segir frá uppvexti, ást sem er alheimsfasti, vaxtarverkjum nýrra tíma, samstöðu og baráttu fyrir afkomu og verndun náttúrunnar. Harmur og húmor liðast um söguna líkt og áin sem rennur um dalinn  stundum gjöful en stundum brigðul, þar sem auðvelt er að festast í slýinu og missa fótanna.

Karfan þín

Valmynd