Silkiormurinn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2020 | 619 | 3.490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2020 | 619 | 3.490 kr. |
Um bókina
Þegar rithöfundurinn Owen Quine gufar upp kallar kona hans á einkaspæjarann Cormoran Strike til að upplýsa málið. Hann hefur áður látið sig hverfa í nokkra daga og hún vill bara að hann komi aftur heim. Strike kemst fljótt að því að Quine hafði nýlokið við handrit að eldfimri bók sem mun leggja líf margra í rúst og því er það ýmsum kappsmál að ekkert verði af útgáfunni. Og þegar afskræmt lík Quines finnst við ógnvekjandi kringumstæður fer allt á fleygiferð; Strike þarf að reyna að átta sig á hvað liggur að baki hryllilegu athæfi miskunnarlauss morðingja … Mögnuð glæpasaga sem kemur stöðugt á óvart.
Robert Galbraith er höfundarnafnið sem metsöluhöfundurinn J.K. Rowling notar á bækur sínar um ævintýri hins sérstæða einkaspæjara Cormorans Strike. Bækurnar hafa selst í milljónum eintaka víða um heim. Brontë Film and Television hefur framleitt vandaða og vinsæla sjónvarpsþætti um Strike fyrir BBC og HBO.
Uggi Jónsson þýddi.
3 umsagnir um Silkiormurinn
embla –
„Rowling á létt með að skapa eftirminnilegar persónur og það á svo sannarlega við um Strike og Robin.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Fréttablaðið
Ester Ósk –
„Iðandi af lúmskum húmor, hnyttnum innskotum og snilligáfu.“
Sunday Times
Ester Ósk –
„Snjöll og fáguð glæpasaga.“
Sunday Mirror