Sæmd
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2013 | 990 kr. | |||
Kilja | 2014 | 176 | 3.100 kr. | ||
Innbundin | 2013 | 176 | 3.100 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2013 | 990 kr. | |||
Kilja | 2014 | 176 | 3.100 kr. | ||
Innbundin | 2013 | 176 | 3.100 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Á köldu vetrarkvöldi árið 1882 situr Benedikt Gröndal skáld í einkennilega húsinu sínu og ákveður að rífa sig upp úr drykkju og draumórum og mæta til kennslustarfa í Lærða skólanum daginn eftir. Þar er hins vegar kominn til valda helsti lærdómsmaður landsins, Björn M. Ólsen, sem lítur á það sem sitt lífsverkefni að hefja þjóðina upp úr fáfræði og vesældómi; og það verði ekki gert án hörku og aga. Skólapiltar voru fjöregg landsins og framtíð, og því áríðandi að ala þá upp í réttum anda. Ólíkir menn, ólíkar hugmyndir – og atvik í skólanum verður til þess að þeim lýstur saman.
Í þessari heillandi og fágætlega vel skrifuðu sögu er byggt á raunverulegum atburðum og persónum, og þær notaðar til þess að draga upp áhrifamikla mynd af svipmiklu fólki og mannlífi á viðkvæmu skeiði í sögu þjóðarinnar. En Sæmd er líka saga um glæp og refsingu, hugrekki, eðli valdsins, stéttaskiptingu, hlutverk skáldsins í samfélaginu – og sæmdina.
Guðmundur Andri Thorsson er einn snjallasti rithöfundur þjóðarinnar, víðkunnur og vinsæll pistlahöfundur og hefur skrifað fjölda skáldverka sem hlotið hafa mikið lof, ekki síst fyrir stílgáfu höfundarins.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 5 klukkustundir og 43 mínútur að lengd. Höfundur les.
6 umsagnir um Sæmd
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Það er góð tilfinning sem fylgir því að lesa bók þar sem mannleg samskipti eru í forgrunni og skrifað er um þau af hlýju og sannri umhyggju fyrir manneskjum. Sæmd er slík bók og höfundi sínum til mikils sóma.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Morgunblaðið
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Orðgnótt hans og stílfimi setur verk hans í flokk þess besta sem ritað er á íslenska tungu … hér er hann í sínu allra besta formi…“
Fríða Björk Ingvarsdóttir /
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Lýtalaus, spennandi, hugsana- og tilfinningavekjandi saga.“
Þorgeir Tryggvason
Nanna Rögnvaldardóttir –
„…hann er einn okkar allra flottasti stílisti … stíllinn er mjög fágaður, mikil konfektaskja að lesa, maður nýtur þess að lesa á hverri einustu blaðsíðu.“
Soffía Auður Birgisdóttir / Kiljan
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Þetta er vel sögð saga, afar fallega skrifuð og sviðsetningar ljóðrænar og vandaðar …“
Einar Falur Ingólfsson / Morgunblaðið
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Meistaralegar mannlýsingar og áhugaverð gegnumlýsing á samfélagi karla í fortíðinni.“
Jón Yngvi Jóhannsson /