Róta rótlausa

Barna- og unglingabækur

Róta rótlausa

eftir Ólöf Vala Ingvarsdóttir

2019 · 24 bls.

Veldu snið

3.490 kr.

Til á lager

Um bókina

Frú Rótalín moldvarpa lifir áhyggjulitlu lífi í holu sinni. En þegar hún eignast nágranna sem smjatta á gulrótum í tíma og ótíma kemur það róti á líf hennar. Og þó að hún flytji í nýja holu þá lagast ástandið ekki.

Þessi rótlausa frú finnur ekki hamingjuna fyrr en hún hefur flutt úr einni holunni í aðra og loks heim aftur þar sem gömlu nágrannarnir fagna henni. Á veraldarflakkinu hefur hún eignast góða vini og lært að láta smámuni ekki trufla sig. Við sögu koma broddgaltarstrákar sem spila fótbolta, gjafmildar kanínur og söngelskar mýs.

Róta rótlausa er þriðja barnabók Ólafar Völu Ingvarsdóttur en fyrri bækur hennar, Bleikir fiskar og Hatturinn frá Katalóníu, hlutu báðar afbragsviðtökur yngstu kynslóðarinnar.

Karfan þín

Valmynd