Ramses I: Sonur ljóssins

Rafbækur

Ramses I: Sonur ljóssins

eftir Christian Jacq

2024

Veldu snið

1.990 kr.

Til á lager

Um bókina

Ramses er ungur prins sem stefnir óhikað á sæti faraós en eldri bróðir hans er honum afar erfiður og hættulegur keppinautur. Inn í valdabaráttuna fléttast ástir Ramsess og samband hans við foreldra og vini. Hverjum er að treysta þegar maður vill komast efst í valdastigann?

Ramses II var einn af þekktustu faraóum Egypta, uppi fyrir rúmum þrjú þúsund árum. Hann lét reisa fleiri hof en nokkur annar faraó, meðal þeirra Amonsmusterin í Karnak og Lúxor. Þessi klassíska skáldsaga eftir Christian Jacq, sérfræðing í menningu, sögu og lífsháttum Egypta til forna, er afar spennandi en einnig lifandi og sannfærandi lýsing á þessum framandi og heillandi heimi.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 11 klukkustundir og 51 mínúta að lengd. Ólafur Egill Egilsson les.

Karfan þín

Valmynd