Pappírsfiðrildi
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2009 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2009 | 990 kr. |
Um bókina
Í afskekktu héraði í Kína er Lin, fangi númer 3424, látinn laus eftir sjö ára þrælkun í fangabúðum. Hann var einn af mótmælendunum á Torgi hins himneska friðar þar sem hugmyndirnar um nýtt og betra Kína voru fótum troðnar.
Í hjarta Pekingborgar býr einkaspæjarinn Mei Wang sig undir að leita að Kaili, vinsælli rokkstjörnu. Þegar leitin breytist í morðrannsókn er Mei vinsamlega bent á að sannleikurinn sé ekki eftirsóknarverður – hún skuli hætta rannsókn sinni. Mei var líka á Torgi hins himneska friðar og atburðirnir þar fylgja henni.
Sannleikurinn um Kaili, afleiðingar átakanna á torginu forðum, pappírsfiðrildið sem hún finnur fyrir tilviljun … Mei situr uppi með drauga fortíðarinnar sem hún neyðist til að horfast í augu við.
Diane Wei Liang fæddist í Peking árið 1966 en bernskuárin bjó hún í vinnubúðum í afskekktum hluta Kína. Hún tók þátt í stúdentauppreisninni, var meðal mótmælenda á Torgi hins himneska friðar árið 1989 og flúði land í kjölfarið. Hún býr nú í Lundúnum.
Bókin er eftir sama höfund og Jaðiaugað em kom út í fyrra við góðar undirtektir.