Öræfi

Skáldverk

Öræfi

Ófeigur Sigurðsson

5
Veldu snið

3.700 kr.

Til á lager

  • „Þessi blanda er rammgöldrótt. Á köflum er algerlega ævintýralegt að lesa Öræfi. Stílfimi Ófeigs er með ólíkindum og hann dregur lesandann út í einkennilegustu ferðalög um íslenska sögu, náttúru og menningu … þótt Öræfi sé með skemmtilegustu bókum þá býr undir rammasta alvara … hér gengur allt upp í magnaðri úttekt á nútímanum með tungutak fortíðarinnar að vopni. Ævintýralega skemmtileg skáldsaga með djúpum og áríðandi undirtónum.“

    Fréttablaðið · Jón Yngvi Jóhannsson

Um bókina

Vorið 2003 kemur ungur maður örmagna og blóðugur inn í Þjónustumiðstöðina í Skaftafelli eftir hrakninga á öræfum. Hann heitir Bernharður Fingurbjörg, austurrískur örnefnafræðingur, og erindi hans til landsins var að halda í rannsóknarleiðangur inn á Vatnajökul og vitja um vettvang hroðalegs glæps sem framinn var tuttugu árum fyrr og beindist meðal annars að móður hans.

Á köflum er þessi bók nokkurs konar sálumessa yfir Íslandi. Þetta er magnaður óður um öræfi landsins, öræfi mannssálarinnar og öræfi íslenskrar menningar. Hér skiptist á fjarstæðukennt grín og kraftmikil ádeila og allt vitnar um djúpa tilfinningu höfundar fyrir íslenskri náttúru og mannlífi gegnum aldirnar.

Ófeigur Sigurðsson hefur hlotið mikið lof fyrir bækur sínar og fékk Skáldsagan um Jón … (2010) meðal annars Bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 11 klukkustundir og 8 mínútur að lengd. Stefán Jónsson les.

Hér má hlusta á hljóðbrot úr bókinni:

Forlagið · Öræfi: Ófeigur Sigurðsson, formáli hljóðbrot

Karfan þín

Valmynd