Óbundið slitlag

Skáldverk

Óbundið slitlag

eftir Sigurjón Bergþór Daðason

2018 · 203 bls.

Veldu snið

3.490 kr.

Til á lager

Um bókina

Dýralæknir er sendur austur á firði til að skoða aðstæður hjá fiskeldisfyrirtæki, bifvélavirki í litlu þorpi missir tökin á lífi sínu, leiðsögumaður á miðjum aldri þarf að horfast í augu við skelfilegan atburð úr æsku og fornleifafræðingur rannsakar nýfundin mannabein.

Allir þessir þræðir fléttast saman í atburðarás sem tekur óvænta stefnu þar sem persónur sögunnar þurfa að takast á við flókinn og grimman veruleika. Frásögnin er lágstemmd og einlæg en yfir og allt um kring eru í senn ógnir, vonir og þrár.

Óbundið slitlag er önnur skáldsaga Sigurjóns Bergþórs Daðasonar en fyrsta skáldsaga hans, Hendingskast, hlaut afar lofsamlega dóma.

Karfan þín

Valmynd