Um bókina
Morðráðgáta með sjálfri fröken Marple, þekktustu söguhetju Agöthu Christie, eftir vinsæla breska spennusagnahöfundinn Lucy Foley. Að útgáfu þessarar bókar stendur útgáfufélag Agöthu Christie í Bretlandi. Þetta er ný bók sem aðdáendur Agöthu Christie hafa beðið eftir.
Grand Alpine hótelið stendur hátt í svissnesku Ölpunum, þar er stórfengleg fjallasýn og snævi þaktar skíðabrekkur og gestirnir koma víða að: alræmda kvikmyndastjarnan, efnilegi stjórnmálamaðurinn, dularfulla eiginkonan, glannalegi vinurinn og glöggskyggni læknirinn. En þegar einn gestanna fer lifandi inn í kláf og finnst látinn á fjallstindinum er ljóst að morðingi gengur laus á meðal þeirra. Spennan magnast og gamlar erjur koma upp á yfirborðið eins og sprungur í ísnum en ávallt fylgist einhver með úr skugganum. Hógvær en skarpskyggn kona: Ungfrú Marple. Hún hefur alla á hótelinu grunaða og það með réttu, því að spurningin er ekki aðeins hver hafði ástæðu heldur hver verður næstur … Hér snýr brautryðjandi aftur í hrollvekjandi morðgátu metsöluhöfundarins Lucy Foley.













