Um bókina
Dagbjört er að verða sextán ára og hefur fengið sumarvinnu í leikskóla þegar líf hennar tekur stakkaskiptum. Hún er alin upp í samfélagi votta Jehóva en þetta sumar kynnist hún nýjum vinum og heillandi valkostum sem verða til þess að vekja spurningar um þá trú og lífsstíl sem hún hefur treyst á alla tíð. Um haustið þegar Dagbjört byrjar í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, er hún breytt manneskja og tekst á við námið með nýjum styrk. Einstök og einlæg saga þar sem tveir ólíkir heimar takast á.













