Meistari hinna blindu

Skáldverk

Meistari hinna blindu

eftir Elí Freysson

2011 · 428 bls.

Veldu snið

Um bókina

„Sundrungin rústaði Gamla heiminum. Logar féllu af himnum ofan á glæstar borgir á meðan forynjur gengu um götur þeirra. Lönd færðust úr stað, hinir dauðu risu af dvala og öll ill öfl veraldar komu úr felum. Mannkynið var rekið á flótta og gert að stefnulausri hjörð sem Dauðaherrarnir veiddu að vild.“

Í sundraðri veröld þar sem mannkynið er umsetið ókennilegum öflum vaknar Mikael í mannlausu þorpi, minnislaus, særður og eini eftirlifandi fólskulegrar árásar. Mikael heldur af stað í leit að ódæðismönnunum og svörum um eigin fortíð. Í ferðalagi um grimman en heillandi heim uppgötvar hann ýmislegt um sjálfan sig og kynnist bæði bandamönnum og óvinum.

Karfan þín

Valmynd