Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Maríumyndin
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 144 | 5.190 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 144 | 5.190 kr. |
Um bókina
Í kyrrlátu þorpi á Kanaríeyjum eiga þau um hríð samleið, heimsmaðurinn Felix og heimastúlkan og dansmærin María. Ástarsaga þeirra er lágstemmd og ljóðræn en stíllinn leynir á sér og spennan liggur í því ósagða.
Maríumyndin kom fyrst út árið 1958 og er önnur tveggja skáldsagna sem Guðmundur Steinsson sendi frá sér áður en hann sneri sér alfarið að leikritun.
María Kristjánsdóttir leikstjóri ritar eftirmála þar sem hún rekur feril höfundarins og áhrif hans á íslenska leikritun, leikhús og bókmenntir.