Ljón norðursins
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Geisladiskur | 2017 | Mp3 | 3.190 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Geisladiskur | 2017 | Mp3 | 3.190 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Í þessari einstöku bók rekur Leó Árnason (1912–1995) lífshlaup sitt, frá því að hann var smaladrengur á sauðskinnsskóm norður á Skaga og þar til hann siglir á brott á Knerri sannleikans með óvæntan farþega um borð.
Leó var á sínum tíma umsvifamikill athafnamaður og um hríð einn af auðugustu mönnum landsins en þar kom að skip hans steytti á skeri; hann sneri baki við borgaralegu líferni, gaf sig listagyðjunni á vald og kallaði sig Ljón norðursins.
Höfundur bókarinnar er Bjarki Bjarnason sem hefur stundað ritstörf um langt skeið við góðan orðstír og sent frá sér jöfnum höndum sagnfræðirit og skáldverk. Hér fetar hann af mikilli leikni óljósa slóð milli skáldskapar og sagnfræði í anda Ljóns norðursins sem segir í bókinni:
Skáldskapurinn er sannur en svonefndur sannleikur er aftur á móti helber uppspuni.
ATH. Tvær gerðir hljóðbóka eru í boði fyrir þessa vöru. Hljóðbókin er til á geisladiski (CD eða Mp3) sem afhendist í pósti eða úr verslun en einnig er hægt að fá hljóðbók sem er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á beint í gegnum app Forlagsins eða vafra (Hljóðbók – App). Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 2 klukkustundir og 50 mínútur að lengd. Höfundur les.