Litli Garðurinn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2020 | 342 | 2.890 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2020 | 342 | 2.890 kr. |
Um bókina
Litli Garðurinn er saga af íslenskri fjölskyldu sem tekst á við afleiðingar atburðar sem hendir hana á Spáni. Höfundur leiðir lesandann á milli tveggja tíma sem eiga sér stað með þrjátíu ára millibili. Sagan gerist að mestu í Barselóna og Sitges, sem er smábær sunnan við borgina.
Höfundur fékk hugmyndina að sögunni úr viðtali við franska konu sem varð fyrir sömu reynslu og íslenska fjölskyldan. Samskonar straumhvörf urðu í lífi hennar og annarrar aðalpersónu sögunnar. Ásamt fjölskyldumeðlimum kynnist lesandinn litríkum karakterum sem reka á fjörur fjölskyldunnar og glæða frásögnina kímni og dýpt. Atburðarrás sögunnar heldur spennunni allt til enda.
Litli Garðurinn er fyrsta skáldsaga höfundar.
„Grípandi bók sem þú leggur ekki frá þér fyrr en þú veist hvernig hún endar. Ég naut þess virkilega að ferðast í huganum um sögusvið bókarinnar og lifa mig inn í annan veruleika. Bók fyrir sumarbústaðinn jafnt sem bókaklúbbinn!“
Sólrún Lárusdóttir sálfræðingur
„Spennandi saga um tengsl foreldra og barna og það sem gerist þegar þau rofna. Persónurnar eru áhugaverðar og sögusviðið lokkandi.“
Guðrún Lára Pétursdóttir bókmenntafræðingur.
„Áhugaverð og spennandi saga um atburð sem hlýtur að vera versta martröð hvers foreldris- og afdrifaríkar afleiðingar fyrir þá sem eftir standa.“
Hildur Knútsdóttir rithöfundur