Um bókina
Í konungsríki, óralangt í burtu, býr undirfögur prinsessa sem er elskuð og dáð af öllum þegnum sínum.
Líf hennar virðist fullkomið þangað til hún vaknar dag einn og þarf að takast á við risavaxið vandamál sem kollvarpar allri veröld hennar.
En er vandamálið eins skelfilegt og hún telur það vera?













