Um bókina
Í túninu heima er sú fyrsta af fjórum samstæðum minningasögum sem Halldór Laxness skrifaði á áttræðisaldri um æsku sína fram til tvítugs. Bókin kom upphaflega út árið 1975.
Frásögnin hefst á Laugavegi í Reykjavík en þar fæddist Halldór og þar mundi hann fyrst eftir sér. Fjölskyldan flutti síðan að Laxnesi í Mosfellsdal og þar ólst hann upp við hefðbundna sveitamenningu sem hafði lítið breyst um aldir. Hér verða þessir tímar ljóslifandi fyrir hugskotssjónum lesenda; heimilislífið í Laxnesi, fólk og fénaður í dalnum, viðfangsefni drengsins og hugðarefni, sem snúast ekki síst um lestur, skrif og bækur.
Minningasögurnar sem fylgdu í kjölfarið eru Sjömeistarasagan, Ungur eg var og Grikklandsárið.













