Hvítt á svörtu
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2007 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2007 | 990 kr. |
Um bókina
Rithöfundurinn Ruben Gallego fæddist með heilahrörnunarsjúkdóm en afi hans skammaðist sín svo fyrir drenginn að hann sendi hann burt aðeins ársgamlan og taldi móður hans trú um að hann væri dáinn. Æska Rubens, sem ólst upp á sovéskum stofnunum, einkenndist af andlegri og líkamlegri vanrækslu og auðmýkjandi aðstæðum. En hann lét aldrei bugast; sterk sjálfsbjargarviðleitni og sannleiksþorsti kveiktu með honum von og löngun til betra lífs.
Saga Rubens sýnir hvernig hægt er að sjá hið góða í því smáa og hvernig óbilandi kjarkur getur fleytt mannskepnunni í gegnum ótrúlegustu raunir.
JPV útgáfa gefur út söguna Hvítt á svörtu eftir rússneska höfundinn Ruben Gallego. Bókin, sem kemur út beint í kilju, hlaut rússnesku Booker-verðlaunin árið 2003 og hefur komið út á fjölda tungumála.
Helga Brekkan þýddi.
7 umsagnir um Hvítt á svörtu
Elín Pálsdóttir –
„Getur það verið að þetta sé satt? Þetta er áhrifamikil sjálfsævisaga … fyrir þá sem vilja lesa dramatíska sjálfsævisögu þar sem mannsandinn vinnur ótrúlegan sigur.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Mannlíf
Elín Pálsdóttir –
„ … svo svakaleg uppvaxtarsaga á munaðarleysingjahælum í Sovétríkjunum að í samanburði finnst mér ég hafi alist upp í allsnægtum á Sunnuhvoli. En Gallego gerir fleira en rekja raunir sínar. Hann sýnir líka fram á að hægt er að sigrast á erfiðum aðstæðum.“
Þráinn Bertelsson / Fréttablaðið
Elín Pálsdóttir –
„Getur það verið að þetta sé satt? Þetta er áhrifamikil sjálfsævisaga … fyrir þá sem vilja lesa dramatíska sjálfsævisögu þar sem mannsandinn vinnur ótrúlegan sigur.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Mannlíf
Elín Pálsdóttir –
„Saga Gallegos snertir lesandann djúpt, og sigrar hans vekja sannanlega gleði.“
Washington Times
Elín Pálsdóttir –
„Stórsigur.“
Guardian
Elín Pálsdóttir –
„Sjálfsævisaga sem grípur lesandann sterkum tökum svo hann stendur á öndinni.“
Kulturnytt
Elín Pálsdóttir –
„Ótrúlegur vitnisburður um sigur mannsandans.“
Evening Standard