Hvert andartak enn á lífi
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 271 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 271 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Um bókina
Hvert andartak enn á lífi er ógleymanleg saga um árið þegar allt breyttist, saga um missi og djúpa sorg, ástina, lífið og dauðann.
Karin og Tom eiga von á fyrsta barni sínu þegar Karin veikist skyndilega og er flutt í snarhasti á sjúkrahús. Barnið er tekið með bráðakeisaraskurði og Tom upplifir ólýsanlega martröð á hlaupum sínum um gangana á milli vökudeildarinnar og gjörgæslunnar; á milli lífs og dauða.
Þegar hann snýr heim er hann einn – með litlu dóttur sinni og sárri sorginni. Og fáeinum mánuðum síðar missir hann föður sinn, sem hann hefur alltaf átt flókið samband við.
Tom Malmquist (f. 1978) hafði þegar sent frá sér ljóðabækur sem vakið höfðu athygli þegar Hvert andartak enn á lífi kom út. Bókin var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2016, hlaut bókmenntaverðlaun Karin Boye og menningarverðlaun DN. Spænska blaðið El País útnefndi hana eina af bestu bókum áratugarins um líf og dauða.
Davíð Stefánsson þýddi.
7 umsagnir um Hvert andartak enn á lífi
Arnar Tómas –
„Þótt óteljandi bækur fyrr og síðar hverfist um sorg og missi eru skrif sænska rithöfundarins Tom Malmquist fersk rista á því efni og sá skurður ristir djúpt.“
Júlía Margrét Alexandersdóttir / Morgunblaðið
Eldar –
„Bókin er sérlega vel skrifuð (…) og þótt aðalpersónan, Tom, láti oft í ljós sársauka sinn og vanmátt í þeim aðstæðum sem hann er lentur í reynir hann þess á milli að láta sem ekkert sé. Neitar í raun að viðurkenna harminn og vanlíðanina.“
Steingerður Steinarsdóttir / Vikan
Elín Pálsdóttir –
„Stórsigur.“
Stavanger Aftenblad
Elín Pálsdóttir –
„Bókmenntir verða ekki óvægnari. Eða betri.“
Berlingske
Elín Pálsdóttir –
„Knýjandi og nístandi sjálfsævisöguleg skáldsaga um sorgina og föðurhlutverkið — saga sem reynir á mörkin milli lífsins og skáldskaparins.“
Financial Times
Elín Pálsdóttir –
„Hvert andartak enn á lífi miðlar þeirri trufluðu upplifun sem það er að verða fyrir djúpu, yfirþyrmandi áfalli … Vitnisburður um frábæra hæfileika Malmquists.“
New York Times
Elín Pálsdóttir –
„Átakanleg og hrífandi saga og um leið sönn bókmenntaleg upplifun.“
Le Temps