Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Gott fólk
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2015 | 306 | 1.695 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2015 | 306 | 1.695 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Um bókina
Sölvi og Sara kynntust við ofbeldisfullar aðstæður. Þau kysstust fyrst á Austurvelli með lungun full af gasi. Tveimur árum síðar banka tveir vinir Sölva upp á og birta honum bréf. Þar ber Sara hann þungum sökum og krefst þess að hann taki ábyrgð á framferði sínu. Sölvi, sem áleit sig góðan og gildan þjóðfélagsþegn – hann hefur margoft starfað sem sjálfboðaliði – áttar sig á því að kannski er hann ekki hetjan heldur illmennið í sögunni. Er hægt að beita ofbeldi án þess að átta sig á því? Er hægt að rétta yfir tilfinningalífinu? Og kannski er mikilvægasta spurningin þessi: Er hann góður?