Goðinn

Skáldverk

Goðinn

Þorvarður Hjálmarsson

Veldu snið

4.690 kr.

Til á lager

Um bókina

Kunnar persónur úr Hrafnkels sögu, Eyrbyggju og Laxdælu stíga hér fram í nýju ljósi. Hrafnkell Freysgoði berst fyrir völdum sínum og sæmd, Snorri goði beitir biðlund og ráðum, en Guðrún Ósvífursdóttir lærir að í heimi ætta og hefnda geta fá orð varpað löngum skugga.

Goðinn er skáldsaga byggð á íslenskum fornsögum, en ekki einföld endursögn þeirra. Persónur, staðir og atburðir úr ólíkum sögum mætast í einni frásögn sem varpar ljósi á þau öfl sem mótuðu íslenskt þjóðfélag við lok heiðni og upphaf kristni. Þar takast á forn og nýr siður, lög og ofríki, mannorð og minni — en kímnin er aldrei langt undan.

Lesandinn fylgir sögunni frá Fljótsdalshéraði og veldi Hrafnkels austanlands, vestur á Snæfellsnes og inn í byggðir Breiðafjarðar. Þar móta goðar, draumar, afturgöngur og óuppgerðar sakir líf manna.

Karfan þín

Valmynd