Gegnum vötn, gegnum eld
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2020 | 1.490 kr. | |||
Kilja | 2020 | 457 | 3.490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2020 | 1.490 kr. | |||
Kilja | 2020 | 457 | 3.490 kr. |
Um bókina
Fyrsta sagan í nýjum spennubókaflokki um bráðalækninn Teklu Berg
Tekla er ungur læknir á bráðadeild Nóbelsjúkrahússins í Stokkhólmi. Hún er eldklár og tekst af öryggi á við hverja áskorun í starfinu. En Tekla á sér leyndarmál. Fjölskyldu-saga hennar er eitt flakandi sár og sársaukann þarf hún að deyfa dag hvern. Og hún býr yfir dýrmætum og hættulegum eiginleika: hún gleymir engu sem hún sér.
Þegar stórbruni verður í háhýsi í borginni bjargar Tekla lífi manns sem enginn veit hver er. Grunsemdir vakna um hryðjuverk og lögreglan vaktar sjúklinginn sem liggur rænulaus og skaðbrunninn á spítalanum. Er hann sprengivargur eða saklaust fórnarlamb – jafnvel maður sem Tekla þekkir mætavel og myndi fórna öllu fyrir?
Gegnum vötn, gegnum eld er geysivel fléttuð spennusaga um grimma undirheima, spillta yfirstétt og baráttu um auð og völd – en líka um böndin sem binda fólk saman til góðs og ills.
Höfundurinn, Christian Unge, er yfirlæknir í Stokkhólmi og hefur starfað fyrir Lækna án landamæra. Hann nýtir reynslu sína og þekkingu vel í bókunum um Teklu.
Hilmar Hilmarsson þýddi.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 11 klukkustundir og 57 mínútur að lengd. Esther Talía Casey les.
3 umsagnir um Gegnum vötn, gegnum eld
Ester Ósk –
„Sterkt plott og æsispennandi. … Tekla er komin til að vera.“
ZIN
Ester Ósk –
„Margbrotin og gríðarlega mögnuð saga.“
Dagens Nyheter
Ester Ósk –
„Tekla er hnífskörp persóna sem gefur manni spennuna í æð. Ekki missa af þessu!“
Jens Lapidus, spennusagnahöfundur