Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Fyrir fallið
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 464 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 464 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Um bókina
Í sumarþokunni síðla kvölds fljúga ellefu manns í einkaþotu frá Martha’s Vineyard áleiðis til New York. Átján mínútum síðar hrapar vélin og hverfur í hafið. Þeir einu sem komast af eru listmálarinn Scott Burroughs og fjögurra ára gamall drengur sem er erfingi ótrúlegra auðæfa fjölmiðlamógúls.
Var þetta slys eða voru einhver myrkraöfl að verki? Fjölmiðlafár skellur á eins og hendi sé veifað. Í þeim darraðardansi myndast tengsl milli drengsins og málarans, og spurningar vakna um hvort okkur séu ásköpuð örlög og siðferði.
Noah Hawley hefur skrifað fjórar skáldsögur og handrit sjónvarpsþáttaraðarinnar Fargo.
Ísak Harðarson þýddi.
5 umsagnir um Fyrir fallið
Eldar –
„Það er sláandi að sjá hvernig glæpasagan hefur tekið að sér hlutverk samfélagsrýni í nútímanum, ekki síst þegar svo mikið liggur við í heimi sem einkennist í æ ríkara mæli af lýðskrumi, græðgi og misbeitinu valds, hvort sem er meðal valdhafa eða þeirra sem taka sér völd í krafti auðs (…) [í bókinni er] afar athyglisverður sá hluti sem snýr að fjölmiðlunum, áhrifavaldi þeirra og þætti í því að móta og hreinlega búa til fréttir og fréttamat…“
Úlfhildur Dagsdóttir / Bókmenntavefurinn
Eldar –
„Hawley leggur metnað í þetta verk sitt (…) blandar inn í söguna heimspekilegum hugleiðingum um heiminn, peninga og merkingu atburða (…) næst kemst verkið í að ná dýpt þegar það skýrist hvað olli því að þotan steyptist í hafið. Það er þá sem lesandinn hugleiðir hversu mikilvægt það er að hver einstaklingur geri sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem hann ber gagnvart öðrum (…) Um margt áhugaverð
spennusaga…“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Fréttablaðið
Elín Pálsdóttir –
„Fyrir fallið er margbrotin rússíbanareið sem grípur alla athygli manns og um leið könnunarleiðangur um mannlegar tilfinningar … sterk og djörf spennusaga.“
The New York Times Book Review
Elín Pálsdóttir –
„Ómótstæðileg ráðgáta … í senn forvitnileg flækja og sársaukafull saga um mannlegan harmleik.“
The Washington Post
Elín Pálsdóttir –
„Ein besta spennusaga ársins.“
The New York Times