Frost

Hljóðbækur

Frost

eftir Roy Jacobsen

2021

Veldu snið

1.290 kr.

Til á lager

Um bókina

Þrettán ára gamall banar Gestur Þórhallsson sjálfum Víga-Styr, einum voldugasta manni Íslands í upphafi 11. aldar, til að hefna föður síns. Í kjölfarið flýr hann land, fer til Noregs og hrekst þar yfir fjöll og heiðar undan fjandmönnum sínum. Honum er kalt, hann verður mannsbani á ný og er hvergi vært en slæst síðan í för með mönnum Danakonungs og Eiríks jarls í herför til Englands.

Hér er á ferðinni óvenjulega stórbrotið og skemmtilegt skáldverk byggt á efni úr Íslendingasögum. Höfundur segir sögu Gests sem alla tíð er smávaxinn en reynist þó bæði öflugur, kænn og miskunnarlaus. Í honum togast á miklar andstæður – ást og hatur, kristin lífsgildi og heiðin, gæska og grimmd – sem endurspegla þann harða og margslungna heim sem hann lifir í.

Roy Jacobsen er einn virtasti og vinsælasti rithöfundur Norðurlanda og hefur hlotið mikið lof fyrir verk sín. Frost hefur fengið frábæra dóma og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Þetta er saga sem heldur lesandanum föngnum frá fyrstu blaðsíðu. Stefán Hjörleifsson þýddi.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 15 klukkustundir og 56 mínútur að lengd. Stefán Benedikt Vilhelmsson les.

  • Sterk – Margrét Tryggvadóttir
    • Kilja
    • Mjúk spjöld
    • Rafbók
    • Hljóðbók

    Sterk

    Margrét Tryggvadóttir

    frá 1.690 kr.

  • Jólin koma – Jóhannes úr Kötlum
    • Innbundin
    • Mjúk spjöld
    • Hljóðbók

    Jólin koma

    Jóhannes úr Kötlum

    frá 1.290 kr.

  • Salka Valka – Halldór Laxness
    • Innbundin
    • Rafbók
    • Hljóðbók

    Salka Valka

    Halldór Laxness

    frá 990 kr.

  • Kalmann – Joachim B. Schmidt
    • Kilja
    • Rafbók
    • Hljóðbók

    Kalmann

    Joachim B. Schmidt

    frá 1.990 kr.

  • Óbragð – Guðrún Brjánsdóttir
    • Kilja
    • Rafbók
    • Hljóðbók

    Óbragð

    Guðrún Brjánsdóttir

    frá 2.990 kr.

  • Árstíðir – Karítas Hrundar Pálsdóttir
    • Kilja
    • Rafbók
    • Hljóðbók

    Árstíðir

    Karítas Hrundar Pálsdóttir

    frá 3.190 kr.

  • Ljónið – Hildur Knútsdóttir
    • Innbundin
    • Kilja
    • Rafbók
    • Hljóðbók

    Ljónið

    Hildur Knútsdóttir

    frá 990 kr.

  • 13 dagar – Árni Þórarinsson
    • Innbundin
    • Kilja
    • Rafbók
    • Hljóðbók

    13 dagar

    Árni Þórarinsson

    frá 990 kr.

Karfan þín

Valmynd