Frásaga Jóns Jónssonar

Skáldverk

Frásaga Jóns Jónssonar

eftir Börkur Gunnarsson

2020 · 160 bls.

Veldu snið

4.690 kr.

Til á lager

Um bókina

Blaðamaðurinn Nonni, sem áður vann á jaðarsettum smáblöðum, stefnir nú hægt upp metorðastigann á ritstjórn Morgunblaðsins. Söguhetjan verður vitaskuld fyrir vonbrigðum þegar tillitslausir samstarfsmenn þykjast ekki taka eftir stílsnilld hans og rotta sig saman í hlæjandi hýenuhópum. En það er ekkert sem nokkrir kaldir á Kaffibarnum ná ekki að bæta upp.

Frásaga Jóns Jónssonar af því hvernig á að ná árangri í starfi og einkalífi er í senn bráðfyndin og harmsöguleg lýsing á andhetju vorra tíma.

Karfan þín

Valmynd