Um bókina
Æskuvinkonurnar Avishag, Lea og Yael alast upp í smábæ í Ísrael. Vandamál þeirra eru kunnugleg: prófstress, partístand, farsímasamband og fyrsta ástin, vinslit og vinkvennaleyndarmál. En þær – eins og aðrir – búa við stöðuga stríðsógn sem markar líf þeirra.
Þegar stelpurnar þrjár eru kvaddar í herinn breytist líf þeirra með ófyrirsjáanlegum hætti, þótt reynsla þeirra sé ólík á þessum mótunarárum. En hvenær verður ógnin að veruleika? Hvenær dynja ósköpin yfir?













