Fléttan
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 221 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 221 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Um bókina
Þrjár konur, þrjú líf, þrjár heimsálfur. Alls staðar sama frelsisþráin.
Smíta á heima á Indlandi. Hún er ósnertanleg, af stétt hinna lægst settu, og leggur allt í sölurnar til að dóttir hennar þurfi ekki að lifa við sömu hörmungaraðstæður og hún sjálf. Í þeirri baráttu fórnar hún því sem henni er dýr mætast: hárinu.
Giulia á heima á Sikiley. Hún vinnur í hárkolluverksmiðju föður síns en þegar hann lendir í slysi kemst hún að því að fjölskyldufyrirtækið er gjaldþrota.
Sarah býr í Kanada. Hún er virtur lögfræðingur sem á mikilvæga stöðuhækkun í vændum þegar hún greinist með illvígan sjúkdóm.
Þessar konur eiga það eitt sameiginlegt að neita að gefast upp fyrir örlögum sínum og andstreymi. Þær ákveða að berjast fyrir sínu − og án þess að þær hafi hugmynd um fléttast lífsþræðir þeirra saman á óvæntan hátt.
Laetitia Colombani er kvikmyndaleikstjóri og leikkona. Fléttan, fyrsta skáldsaga hennar, vakti mikla athygli þegar hún kom út í Frakklandi árið 2017 og útgáfurétturinn hefur þegar verið seldur til 28 landa.
Ólöf Pétursdóttir þýddi.
4 umsagnir um Fléttan
Eldar –
„Bókin hefur notið gríðarlegra vinsælda út um allan heim og er það skiljanlegt, því þetta er framúrskarandi og upplífgandi skáldsaga“
Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, Orð um bækur / RÚV
Elín Pálsdóttir –
„Skáldsaga sem allar konur ættu að lesa.“
Véronique Marchand, Le Failler-bókabúðinni
Elín Pálsdóttir –
„Glæsileg innreið höfundar á ritvöllinn.“
La Parisienne
Elín Pálsdóttir –
„Þessi saga er óður til samstöðunnar, til baráttuþreks og hugrekkis kvenna um allan heim.“
Version Femina