Eitur
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2023 | 231 | 4.490 kr. | ||
Innbundin | 2023 | 231 | 4.690 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2023 | App | 3.990 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2023 | - | 3.690 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2023 | 231 | 4.490 kr. | ||
Innbundin | 2023 | 231 | 4.690 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2023 | App | 3.990 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2023 | - | 3.690 kr. |
Um bókina
Eitur er önnur bókin í glæpasagnaflokknum um tvíeykið Dóru og Rado, harðsoðinn hörkukrimmi sem fjallar á raunsannan hátt um myrkar hliðar Reykjavíkur samtímans. Fyrsta bókin, Brotin, fékk afar jákvæðar viðtökur gagnrýnenda og mun koma út í Þýskalandi á næsta ári. Einnig eru í bígerð sjónvarpsþættir byggðir á sögunni.
Tökur á erlendum sjónvarpsþáttum standa sem hæst í kvikmyndaverinu í Gufunesi þegar illa farið lík finnst innan í leikmyndinni. Hinn látni reynist vera sambýlismaður lögregluforingjans Elliða, sem setur málið umsvifalaust í hendur þeim sem hann treystir best: Utangarðslöggunum og ólíkindatólunum Dóru og Rado.
Brátt verður ljóst að málið tengist nýjum og banvænum fentanýl-töflum sem bráðliggur á að uppræta. Dóra og Rado leggja því upp í skuggalegt ferðalag um undirheima Reykjavíkur þar sem ópíóðar hafa gerbreytt landslaginu á síðustu árum. En sjálf hafa þau sína djöfla að draga: Dóra heyr baráttu við verkjalyfjafíkn og Rado á bágt með að hrista fortíðina af sér.
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 5 klukkustundir og 52 mínútur að lengd. Höfundur les.
Hér má hlusta á brot úr fyrsta kafla hljóðbókarinnar:
2 umsagnir um Eitur
embla –
„Þessi hörkuflotta saga er spennandi frá upphafi til enda og af ýmsum ástæðum sem ekki má upplýsa getur maður varla beðið eftir næstu bók.“
Steingerður Steinarsdóttir / Lifðu núna
embla –
„Algjör negla!“
Ómar Úlfur / X-ið