Um bókina
Edgar, 14 ára mállaus drengur, elst upp á býli þar sem hundar eru ræktaðir. Samband hans við föður og móður er náið, en allt breytist þegar Claude, föðurbróðir hans, kemur á býlið. Faðir drengsins deyr skömmu síðar og telur Edgar sig vita hver eigi sökina. Hann stingur af inn í skóginn með hunda sína þrjá. En Edgar getur ekki gleymt æskuheimilinu og snýr heim til að mæta morðingja föður síns.













