Dimmumót

Hljóðbækur

Dimmumót

eftir Steinunn Sigurðardóttir

2019 · 92 bls.

Veldu snið

4.290 kr.

Til á lager

Um bókina

Tíminn, Höfuðskepnan
ekki samur
stormar ekki lengur striklotuna
svo það stirnir á makkann
í eilífðar bláljósi fjallsins.

Höktir nú sköllóttur út á hlið
í vaxandi skugga fjallsins
í eilífu rökkri landsins
dægravillt gamalmenni.

Dimmumót er áhrifamikil bók, þrungin sterkum og óvæntum náttúrumyndum. Frá björtum sjónarhóli barnsins sem heillast af hvítu eilífðarfjalli liggur leiðin til óvissu og umbreytinga samtímans. Stórbrotin og sláandi ástarjátning til lands og jökuls.

Steinunn Sigurðardóttir er eitt af höfuðskáldum okkar og hefur alla tíð verið í beinu og brýnu samtali við líðandi stund í skáldskap sínum og skrifum. Dimmumót er tíunda ljóðabók hennar.

Steinunn Sigurðardóttir fagnar á árinu 2019 hálfrar aldar höfundarafmæli en fyrsta bók hennar, Sífellur, kom út 1969, þegar hún var aðeins nítján ára. Steinunn hefur sent frá sér jöfnum höndum skáldsögur og ljóð. Hún hefur einnig samið leikverk, smásögur og tvær sannsögur, um Vigdísi Finnbogadóttur og Heiðu fjalldalabónda. Verk hennar hafa notið mikilla vinsælda og hún hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir ritstörf, meðal annars Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar árið 2014. Árið 1995 fékk hún Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir skáldsöguna Hjartastað. Bækur hennar hafa lengi verið gefnar út víða í Evrópu við góðar undirtektir og í Frakklandi var gerð kvikmynd eftir þekktustu skáldsögu hennar, Tímaþjófnum.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 55 mínútur að lengd. Höfundur les.

Hér má hlusta á brot úr fyrsta kafla hljóðbókarinnar:

  • Sterk – Margrét Tryggvadóttir
    • Kilja
    • Mjúk spjöld
    • Rafbók
    • Hljóðbók

    Sterk

    Margrét Tryggvadóttir

    frá 1.690 kr.

  • Jólin koma – Jóhannes úr Kötlum
    • Innbundin
    • Mjúk spjöld
    • Hljóðbók

    Jólin koma

    Jóhannes úr Kötlum

    frá 1.290 kr.

  • Salka Valka – Halldór Laxness
    • Innbundin
    • Rafbók
    • Hljóðbók

    Salka Valka

    Halldór Laxness

    frá 990 kr.

  • Kalmann – Joachim B. Schmidt
    • Kilja
    • Rafbók
    • Hljóðbók

    Kalmann

    Joachim B. Schmidt

    frá 1.990 kr.

  • Óbragð – Guðrún Brjánsdóttir
    • Kilja
    • Rafbók
    • Hljóðbók

    Óbragð

    Guðrún Brjánsdóttir

    frá 2.990 kr.

  • Árstíðir – Karítas Hrundar Pálsdóttir
    • Kilja
    • Rafbók
    • Hljóðbók

    Árstíðir

    Karítas Hrundar Pálsdóttir

    frá 3.190 kr.

  • Ljónið – Hildur Knútsdóttir
    • Innbundin
    • Kilja
    • Rafbók
    • Hljóðbók

    Ljónið

    Hildur Knútsdóttir

    frá 990 kr.

  • 13 dagar – Árni Þórarinsson
    • Innbundin
    • Kilja
    • Rafbók
    • Hljóðbók

    13 dagar

    Árni Þórarinsson

    frá 990 kr.

Karfan þín

Valmynd