Dexter í dimmum draumi
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2005 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2005 | 990 kr. |
Um bókina
Dexter Morgan er einn færasti blóðslettufræðingur lögreglunnar í Miami. Hann er vinnusamur og traustur og kann sitt fag enda nýtir hann sér það á ógleymanlegan hátt og út í ystu æsar. Dexter hefur í rauninni flest það til að bera sem prýða má einn mann; hann er myndarlegur, ástríkur, fyndinn, hjálpsamur, barnslegur og hreint ótrúlega snjall. En það lúra í honum hin myrkustu öfl og þau knýja hann hvað eftir annað til hrottafenginna og miskunnarlausra morða.
Sjálfur segist Dexter eiga sér nokkrar málsbætur; hann drepur þá sem eiga það skilið, hann drepur bara vonda menn, hann hreinsar burtu óþverrann, hann slítur illskuna upp með rótum; og kannski er það einmitt þess vegna sem lesandinn á sér þá lævísu ósk að ekki komist upp um hinn slungna en jafnframt elskulega raðmorðingja.
Jeff Lindsay hefur á ógleymanlegan hátt tekist að koma hinu margbrotna eðli raðmorðingjans til skila. En um leið gerir hann lesandann ábyrgan þátttakanda í spennandi og magnþrunginni frásögn. Dexter í dimmum draumi er bók sem svíkur engan sem ann krassandi krimma af bestu og ferskustu gerð.
7 umsagnir um Dexter í dimmum draumi
Elín Pálsdóttir –
„Skemmtileg og spennandi … auk þess að vera nokkuð umhugsunarverð … hrollvekjublandan gerir einnig mikið fyrir söguna.“
Úlfhildur Dagsdóttir / Bokmenntir.is
Elín Pálsdóttir –
„Dexter í dimmum draumi er frumleg og óþægilega ögrandi skáldsaga.“
Denver Post
Elín Pálsdóttir –
„Grípandi og yndislega óvenjuleg bók. Það blása um hana ferskir vindar. Dexter í dimmum draumi er frumlegasta spennusaga sem komið hefur út um árabil.“
Publishers Weekly
Elín Pálsdóttir –
„Unnendur myrkraaflanna hafa eignast sitt uppáhald.“
New York
Elín Pálsdóttir –
„Dexter Morgan er tvímælalaust einn viðfelldnasti raðmorðingi sem gengur laus í spennusögum nútímans.“
New Yorker
Elín Pálsdóttir –
„Skyldulesning … þið einfaldlega verðið að lesa hana!“
Time Magazine
Elín Pálsdóttir –
„Sláandi snilld.“
New York Times