Um bókina
Skipaeigandi finnst látinn, bundinn við rúm í einu af fínni hótelunum í Reykjavík.
Rannsóknarlögreglumaðurinn Gunnhildur Gísladóttir fær málið til rannsóknar. Rannsókn hennar leiðir í ljós skuggalegan heim kynlífsóra og fjárkúgunar.
Enski rithöfundurinn Quentin Bates hefur tekið ástfóstri við Ísland. Bækur hans um Gunnhildi aðstoðarvarðstjóra í lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu gerast allar á Íslandi.













