Um bókina
Í bókinni er annars vegar sagt frá nokkrum Íslendingum sem gengu til liðs við Þjóðverja í síðustu heimsstyrjöld og hins vegar frá nokkrum fórnarlömbum nasista sem sum urðu að gjalda fyrir samband sitt við þá með lífinu. Þessi nýja útgáfa bókarinnar er mikið endurskoðuð og í henni birtast miklar upplýsingar sem nýlega hafa orðið aðgengilegar í skjalasöfnum.













