Ástaraldin
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2004 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2004 | 990 kr. |
Um bókina
Hvernig bregst faðir þrettán ára drengs við þeirri uppgötvun að hann hafi alla tíð verið ófrjór? Þessi spurning er upphafið á skáldsögunni Ástaraldin. Í leit sinni að hinum líffræðilega föður tekur sögumaður okkur með sér í ótrúlegt ferðalag, þar sem hann er knúinn til að endurmeta fortíðina og allt sem hann hafði trúað á fram að því.
Í einstaklegri snjallri frásögn er leitað svara við þeirri áleitnu spurningu hversu vel maður þekkir þá sem standa manni næst. Sagan er hjartnæm og spennandi, og einkennist af erótík og gáskafullum húmor.
Bókin Ástaraldin hefur selst í hundraðþúsundum eintaka í Hollandi og Karel Glastra van Loon fékk hollensku bókmenntaverðlaunin, General Bank Literary Prize, þegar bókin kom út árið 1999. Ástaraldin hefur nú þegar verið seld til yfir 20 landa og gerð hefur verið kvikmynd eftir bókinni.
Þorgeir Guðlaugsson íslenskaði.
2 umsagnir um Ástaraldin
Elín Pálsdóttir –
„Þessi skáldsaga nær miklu flugi eins og góðar ráðgátur gera, þegar Armin kafar ofan í líferni fyrrverandi unnustu sinnar og sér hugsanlegan elskhuga við hvert fótmál … Svarið við því hvert hið raunverulega faðerni sonarins er kemur í ljós á tilkomumikinn hátt, en þegar það gerist hefur Armin þegar leyst aðra stærri gátu, um það hvernig á að vera faðir og elskhugi.“
The New York Times
Elín Pálsdóttir –
„Frábær söguflétta og óvænt endalok gera þessa bók að sigurvegara.“
Publisher’s Weekly