Ásgeir Ásgeirsson: maðurinn og meistarinn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2019 | 126 | 2.590 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 990 kr. |
Ásgeir Ásgeirsson: maðurinn og meistarinn
990 kr. – 2.590 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2019 | 126 | 2.590 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 990 kr. |
Um bókina
Ásgeir Ásgeirsson var annar forseti Íslands og sá fyrsti sem kjörinn var í almennri kosningu. Hann var guðfræðingur að mennt en vann sem kennari, útgefandi, fræðslumálastjóri, þingmaður, ráðherra og bankastjóri áður en hann tók við forsetaembættinu.
Starfsheiti segja samt aðeins hálfa sögu um styrk mannsins. Ásgeir var einstaklega vel gerður, þroskaði á sjálfstæðan hátt sínar góðu gáfur, barðist gegn öfgum; bæði í stjórnmálum og trúmálum. Hann aðhylltist jafnaðarstefnu, lýðræði og vestræna samvinnu og um leið þjóðrækni og umburðarlynda kristni. Ásgeir hélt þau gildi ávallt í heiðri eins og skýrt kom fram í orðum hans og athöfnum. Einn þáttur í starfi hans sem fáir vita um er þegar hann á síðasta hluta ævi sinnar stýrði Frímúrarareglunni á Íslandi sem Stórmeistari.
Ásgeir hafði jákvæða afstöðu til lífsins og mannlegra samskipta og störf hans skiluðu árangri. Hann vann til góðs, naut hvarvetna mikillar virðingar og vinsælda og var hamingjusamur fjölskyldumaður.