Allar lífsins lygar

Skáldverk

Allar lífsins lygar

eftir Liane Moriarty

2019 · 407 bls.

Veldu snið

Um bókina

Eftir að Jane eignaðist soninn Ziggy fyrir fimm árum hefur hún flutt milli staða á nokkurra mánaða fresti. Hún er á flótta undan fortíð sinni. Núna er hún komin á góðan stað, standstaðinn Pirriwee, og loks líður henni vel. Hún eignast meira að segja góðar vinkonur, Madeline og Celeste, sem vilja allt fyrir hana gera. Þær virðast lifa fullkomnu lífi, en undir niðri liggja ótrúleg leyndarmál – og lygar.

Í skólabyrjun á sér stað atvik sem breytir lífi allra þessara kvenna, barna og foreldra. Upp úr því verður stríð sem einkennist af baktjaldamakki, lygum á lygar ofan, og morði.

Sjónvarpsþáttaröðin Big Little Lies, sem gerð var eftir þessari bók, sló rækilega í gegn um heim allan og hlaut ótal verðlaun. Í aðalhlutverkum eru þær Reese Witherspoon, Nicole Kidman, Shailene Woodley, Laura Dern og Zoe Kravitz.

Karfan þín

Valmynd