
- Mjúk spjöld
The Wonders of Lake Mývatn
Unnur Jökulsdóttir
3.490 kr.

Forlagshöfundur
12 bækur
Unnur Þóra Jökulsdóttir er fædd 1955 og ólst upp í Flóanum og í Reykjavík. Eftir stúdentspróf frá MR lagðist hún í ferðalög og sigldi meðal annars um heimsins höf í fimm ár á skútunni Kríu. Unnur hefur stundað ýmis störf og getið sér einkar gott orð fyrir ritstörf.
Fyrsta bók Unnar var ferðabókin Kjölfar Kríunnar – á skútu um heimsins höf, sem kom út 1989, og fjórum árum seinna fylgdi Kría siglir um Suðurhöf, en bækurnar tvær skrifaði hún í félagi við Þorbjörn Magnússon. Þar var lýst ævintýralegum siglingum þeirra og ferðum um framandi slóðir og bækurnar nutu fádæma vinsælda. Unnur hefur skrifað fleiri vinsælar bækur um náttúru, fólk og ferðalög; hún hefur skrifað um íslenskt hverdagsfólk og huldufólk og samið texta í ljósmyndabækur. Enn fremur hefur hún sent frá sér barnabók. Flestar Íslandsbækur Unnar hafa komið út á fleiri tungumálum en íslensku.
Árið 2017 kom út bókin Undur Mývatns – um fugla, flugur, fiska og fólk, þar sem Unnur lýsir undraheimum Mývatns og Mývatnssveitar; segir frá náttúrufari svæðisins, mannlífi og landslagi af brennandi áhuga og væntumþykju, en hún hefur dvalið mikið við Mývatn. Bókin er í senn fræðandi og fallega skrifuð og fékk geysigóðar viðtökur. Fyrir hana vann Unnur bæði til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðirita og Fjöruverðlaunanna í sama flokki. Þá hlaut hún einnig tilnefningu til Viðurkenningar Hagþenkis fyrir Undur Mývatns.
Sýnir 1–12 af 12 bókum
Undir 7.000 kr.
Unnur Jökulsdóttir
3.490 kr.

Unnur Jökulsdóttir
frá 890 kr.

Unnur Jökulsdóttir
frá 1.990 kr.

Unnur Jökulsdóttir
1.990 kr.

Sigurgeir Sigurjónsson og Unnur Jökulsdóttir
690 kr.

Sigurgeir Sigurjónsson og Unnur Jökulsdóttir
690 kr.

Sigurgeir Sigurjónsson og Unnur Jökulsdóttir
690 kr.

Erlend og Orsoyla Haarberg og Unnur Jökulsdóttir
990 kr.

Erlend og Orsoyla Haarberg og Unnur Jökulsdóttir
990 kr.

Erlend og Orsoyla Haarberg og Unnur Jökulsdóttir
990 kr.

Erlend og Orsoyla Haarberg og Unnur Jökulsdóttir
3.790 kr.

Unnur Jökulsdóttir
frá 1.990 kr.