Stella Blómkvist

Forlagshöfundur

0 bækur

Stella Blómkvist

Ráðgátan um það hver hann sé rithöfundurinn dularfulli sem skrifar undir nafni Stellu Blómkvist hefur heillað íslenska lesendur í meira en tvo áratugi. Ýmsar misskrautlegar getgátur hafa verið á lofti. Bækur Stellu hafa meðal annars verið hermdar upp á forsætisráðherra, ýmsa af þekktustu rithöfundum þjóðarinnar og upp á þekktan bókmenntarýni. En þó hefur hvorki gengið né rekið að svipta hulunni af leyndarmálinu. Það verður að teljast afrek í jafn litlu samfélagi og hér á Íslandi.

Stella sjálf lætur sér fátt um finnast og heldur sínu harðsoðna striki. Hún hefur síðan 1997 eignast fastan aðdáendahóp sem nýtur þess út í æsar að fylgjast með þessu leðurklædda glæfrakvendi og stjörnulögmanni leysa morðmál og taka bæði prúðupilta, harðsvíraða glæpamenn og kerfiskalla í nefið. Og skola síðan öllu saman niður með sopa af Nonna og vel valdri speki frá mömmu.

Sía niðurstöður

Hreinsa
Flokkar
Snið
Verð
2.500 kr.3.000 kr.+

Engar bækur fundust

Frá 5.000 kr.

Engar bækur passa við síurnar.

Hreinsa síur

Karfan þín

Valmynd