
- Innbundin
- Mjúk spjöld
- Rafbók
Allt sem við hefðum getað orðið
Sif Sigmarsdóttir
frá 3.490 kr.

Forlagshöfundur
8 bækur
Sif Sigmarsdóttir, fædd 1978, er kunn fyrir beittan húmor og skarpa sýn á samfélagið. Auk þess að vera þekktur pistlahöfundur í íslenskum fjölmiðlum, er hún einn af farsælustu unglingahöfundum landsins. Sif hóf rithöfundaferil sinn með hinni bráðfyndnu og vinsælu Ég er ekki dramadrottning árið 2006 og árið 2013 var fantasía hennar Freyju saga – Múrinn tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Undanfarin ár hefur Sif verið búsett í London og er hún farin að hasla sér völl sem höfundur í Bretlandi. Tvær bækur hafa komið út eftir hana hjá Hodder-útgáfurisanum þar í landi, vísindaskáldsagan I am Traitor 2017 og spennusagan The Sharp Edge of a Snowflake 2019.
Sif er bæði bókmenntafræðingur og sagnfræðingur að mennt og árið 2018 kom út eftir hana Íslandssaga fyrir unglinga, myndskreytt af Halldóri Baldurssyni. Þar fær kímnigáfa beggja höfunda að njóta sín út í æsar og snúa þau öllum helstu klisjum þjóðarsögunnar á haus.
Frá 2007 til 2010 hélt Sif úti bókaklúbbnum Handtöskuseríunni sem gaf út þýddar skáldsögur eftir konur.
Sýnir 1–8 af 8 bókum

Sif Sigmarsdóttir
frá 3.490 kr.

Sif Sigmarsdóttir
frá 1.990 kr.

Halldór Baldursson og Sif Sigmarsdóttir
2.990 kr.

Sif Sigmarsdóttir
frá 990 kr.

Sif Sigmarsdóttir
4.190 kr.

Sif Sigmarsdóttir
3.890 kr.

Sif Sigmarsdóttir
frá 990 kr.

Sif Sigmarsdóttir
frá 990 kr.