Kristín Eiríksdóttir

Forlagshöfundur

3 bækur

Kristín Eiríksdóttir

Kristín Eiríksdóttir er fædd í Reykjavík árið 1981. Hún lauk BA-prófi frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2005 og er starfandi rithöfundur.

Fyrsta ljóðabók Kristínar, Kjötbærinn, kom út árið 2004. Áður höfðu ljóð hennar birst í tímaritum og dagblöðum og allt frá upphafi skipaði hún sér í hóp athyglisverðustu skálda af sinni kynslóð. Í kjölfar Kjötbæjarins fylgdu fleiri ljóðabækur en árið 2010 kom út fyrsta prósaverk hennar, smásagnasafnið Doris deyr, og tveimur árum síðar fyrsta skáldsagan, Hvítfeld – fjölskyldusaga. Bækurnar hlutu einróma lof gagnrýnenda sem voru á einu máli um að Kristín hefði sterk tök á forminu og skapaði einstakt andrúmsloft í verkum sínum.

Segja má að Kristín hafi slegið rækilega í gegn með annarri skáldsögu sinni sem kom út árið 2017 og ber titilinn Elín, ýmislegt, en fyrir hana hlaut hún bæði Íslensku bókmenntaverðlaunin og Fjöruverðlaunin. Bókin var jafnframt tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

Auk þess að skrifa ljóð og sögur hefur Kristín getið sér gott orð sem leikskáld og einnig hefur hún unnið að myndlist, tekið þátt í samsýningum og sett upp gjörninga hér heima og erlendis. Sögur hennar og ljóð hafa verið þýdd og gefin út erlendis.

Sía niðurstöður

Hreinsa
Flokkar
Snið
Verð
0 kr.3.000 kr.

Sýnir 1–3 af 3 bókum

Undir 3.000 kr.
Elín, ýmislegt – Kristín Eiríksdóttir
  • Innbundin
  • Kilja
  • Rafbók
  • Hljóðbók

Elín, ýmislegt

Kristín Eiríksdóttir

frá 990 kr.

Doris deyr – Kristín Eiríksdóttir
  • Innbundin
  • Rafbók

Doris deyr

Kristín Eiríksdóttir

frá 990 kr.

Karfan þín

Valmynd