
- Mjúk spjöld
- Hljóðbók
Maxímús Músíkús trítlar í tónlistarskólann
Hallfríður Ólafsdóttir og Þórarinn Már Baldursson
frá 990 kr.

Forlagshöfundur
3 bækur
Hallfríður Ólafsdóttir var fædd 12. júlí 1964. Hún var flautuleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands og lék reglulega einleikskonserta með sinfóníuhljómsveitinni. Hún var einnig kennari við Listaháskóla Íslands og Tónlistarskólann í Reykjavík og lagði stund á hljómsveitarstjórn. Hún féll frá 4. september 2020.
Hallfríður var höfundur metsölubókanna um Maxímús Músíkús sem hafa notið mikilla vinsælda hér heima og komið út í fjölda landa. Bækurnar innihalda sögur um músíkölsku músina Maxímús prýddar myndum eftir Þórarin Má Baldursson og með þeim öllum fylgir tónlist í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hallfríður og Þórarinn hlutu Fjöruverðlaunin og Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar fyrir bókina Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina.
Hallfríður hlaut titilinn Bæjarlistamaður Garðabæjar árið 2003, var tilnefnd til Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins 2010, útnefnd Eldhugi ársins 2017 og var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 2014 fyrir frumkvæði að tónlistaruppeldi æskufólks með verkefninu um Maxímús Músíkús.
Sýnir 1–3 af 3 bókum
Undir 3.000 kr.
Hallfríður Ólafsdóttir og Þórarinn Már Baldursson
frá 990 kr.

Hallfríður Ólafsdóttir og Þórarinn Már Baldursson
frá 990 kr.

Hallfríður Ólafsdóttir, Linda Sigfúsdóttir og Þórarinn Már Baldursson
1.790 kr.