
- Innbundin
Rauði krossinn á Íslandi: 100 ára saga
Guðjón Friðriksson
12.490 kr.

Forlagshöfundur
7 bækur
Guðjón Friðriksson sagnfræðingur er fæddur í Reykjavík 9. mars 1945. Hann lauk stúdentprófi frá MR 1965, BA-prófi í sagnfræði og íslensku frá Háskóla Íslands 1970 og prófi í uppeldis- og kennslufræði 1971. Hann starfaði við kennslu 1970-1975 og blaðamennsku 1976-1985, var ritstjóri Sögu Reykjavíkur 1985-1991 en hefur verið rithöfundur í fullu starfi frá 1991.
Guðjón hefur gegnt margvíslegum félagsstörfum, sinnt dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi og skrifað fjölda greina og ritgerða í blöð, tímarit og bækur, auk þeirra bóka sem taldar eru upp hér á eftir. Hann er félagi í Reykjavíkurakademíunni.
Guðjón hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir ritstörf, m.a. móðurmálsverðlaun úr Minningarsjóði Björns Jónssonar 1985, menningarverðlaun Visa-Íslands 2000 og sex sinnum hefur hann verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og hlotið þau þrisvar; fyrir Sögu Reykjavíkur, Bærinn vaknar 1992, fyrir Einar Benediktsson, Ævisögu 1 1997 og loks fyrir Jón Sigurðsson – ævisögu 2 2003.
Bækur Guðjóns:
Forsetakjör 1980, 1980.
Vigdís forseti, 1981.
Togarasaga Magnúsar Runólfssonar, 1983.
Á tímum friðar og ófriðar 1924–1925, heimildaljósmyndir Skafta Guðjónssonar, 1983.
Reykjavík bernsku minnar, viðtalsbók, 1985.
Saga Reykjavíkur. Bærinn vaknar, fyrri hluti 1991, síðari hluti 1994.
Saga Jónasar Jónssonar frá Hriflu 1–3: Með sverðið í annarri hendi og plóginn í hinni, 1991, Dómsmálaráðherrann, 1992, Ljónið öskrar, 1993.
Indæla Reykjavík. Þingholt og sunnanvert Skólavörðuholt, 1995.
Indæla Reykjavík. Gamli vesturbærinn, 1996.
Einar Benediktsson. Ævisaga 1–3, 1997-2000.
Nýjustu fréttir! Saga fjölmiðlunar frá upphafi til vorra daga, 2000.
Jón Sigurðsson – ævisaga, fyrra bindi 2002, síðara bindi 2003.
Ég elska þig stormur – ævisaga Hannesar Hafstein, 2005.
Saga af forseta, 2008.
Sýnir 1–7 af 7 bókum
Frá 5.000 kr.
Guðjón Friðriksson
12.490 kr.

Guðjón Friðriksson
17.290 kr.

Guðjón Friðriksson
25.490 kr.
Guðjón Friðriksson
9.990 kr.

Guðjón Friðriksson
6.790 kr.

Guðjón Friðriksson
11.990 kr.

Guðjón Friðriksson og Jón Þ. Þór
6.790 kr.