Ása Marin

Forlagshöfundur

8 bækur

Ása Marin

Hafnfirski rithöfundurinn og leiðsögumaðurinn Ása Marin Hafsteinsdóttir er fædd árið 1977. Fyrsta bókin sem kom út eftir hana var ljóðabókin Búmerang en þá var Ása tvítug og hefur síðan skrifað bæði ljóð, smásögur, námsefni og tvo skáldsagnaflokka. Fyrri flokkurinn samanstendur af skálduðum ferðasögum og hófst með bókinni Vegur vindsins en hún segir frá göngu eftir Jakobsveginum.

Eftir að hafa farið með lesendur til Víetnams, Spánar og Karíbahafsins sneri Ása sér að heimahögunum og hóf að skrifa ljúfar, alíslenskar aðventu-ástarsögur sem hafa notið mikilla vinsælda.

Sía niðurstöður

Hreinsa
Flokkar
Snið
Verð
0 kr.5.000 kr.+

Sýnir 1–8 af 8 bókum

Undir 5.000 kr.

Karfan þín

Valmynd