Ari Jóhannesson

Forlagshöfundur

3 bækur

Ari Jóhannesson

Ari Jóhannesson er fæddur í Reykjavík árið 1947. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík, lauk prófi frá læknadeild Háskóla Íslands árið 1973 og stundaði framhaldsnám í lyflækningum og innkirtlasjúkdómum í Connecticut í Bandaríkjunum. Ari starfaði við Sjúkrahúsið á Akranesi frá 1984 til 1998, en hefur síðan verið við störf á Landspítalanum og er að auki klínískur dósent við læknadeild Háskóla Íslands.

Ari hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2007 fyrir handrit að ljóðabókinni Öskudagar og var það hans fyrsta bók. Árið 2014 sendi hann frá sér skáldsöguna Lífsmörk og önnur skáldsaga hans, Urðarmáni, kom út vorið 2019. Það er söguleg skáldsaga sem gerist að mestu í Reykjavík þegar spænska veikin geisaði árið 1918 og vakti sagan verulega athygli.

Sía niðurstöður

Hreinsa
Flokkar
Snið
Verð
0 kr.7.000 kr.+

Sýnir 1–3 af 3 bókum

Undir 7.000 kr.
Urðarmáni – Ari Jóhannesson
  • Kilja
  • Rafbók
  • Hljóðbók

Urðarmáni

Ari Jóhannesson

frá 990 kr.

Lífsmörk – Ari Jóhannesson
  • Kilja
  • Rafbók
  • Hljóðbók

Lífsmörk

Ari Jóhannesson

frá 990 kr.

Karfan þín

Valmynd