Villisumar verður kvikmynd

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Guðmundur Óskarsson

Franski framleiðandinn Frozen Frogs mun ásamt íslensku framleiðendunum Tender Lee og Stór&smá standa fyrir gerð kvikmyndar sem verður byggð á skáldsögunni Villisumar eftir Guðmund Óskarsson. Þegar hefur verið ráðið í þrjár lykilstöður: Leikstjóri verður Marteinn Þórsson, handritshöfundar Marteinn Þórsson og Guðmundur Óskarsson og annað aðalhlutverkanna leikið af Ólafi Darra Ólafssyni.

Villisumar kom út hjá Forlaginu nú í haust og vaknaði snemma áhugi á að vinna úr henni kvikmynd. „Sagan gerist að mestu í Frakklandi. Hún fjallar þó um Íslendinga, feðga, og dvöl þeirra í því ágæta landi. Því var alltaf ljóst að við þyrftum franskan framleiðanda með góðan trúverðugleika til að láta kvikmynd verða að veruleika. Nú erum við skrefi nær því,” segja framleiðendur myndarinnar á Íslandi.

Villisumar er snörp og heillandi saga sem segir frá unglingspilti sem dvelur eitt sumar með föður sínum, þekktum listmálara og erfiðum í umgengni, í suðrænni borg. Dvölin verður afdrifarík fyrir þá báða. Áratugum síðar snýr sonurinn aftur í fylgd uppkominna barna sinna og rifjar upp þetta einkennilega sumar á framandi stað, undir brennandi sól. Sumarið þegar leiðir skildi.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd