Það er sagt um bækur finnska spennusagnahöfundarins Antti Tuomainen að það sé engin leið að leggja þær frá sér, þær séu áhrifamiklar og vekjandi. Nýjasta bók hans, Græðarinn, er komin út á íslensku í þýðingu Sigurðar Karlssonar og er að koma út víða um heim um þessar mundir. Hún var tilnefnd til norræna Glerlykilsins 2012 og hefur fengið mikið lof um allar trissur, líka hér á landi. Til dæmis gaf Nörd norðursins henni fjórar og hálfa stjörnu og hafði þetta að segja um hana: „Hún virkar fyrir þá sem hafa gaman af krimmum, fyrir þá sem hafa gaman af dystópíum, fyrir þá sem hafa gaman af sögum sem kafa aðeins dýpra í mannlegt eðli og mannlega eymd og hún virkar jafnvel fyrir þá þarna úti sem hafa gaman af ástarsögum.“
Eftirfarandi viðtal birtist við Antti á Dead Good-vefsíðunni í tilefni af útgáfu Græðarans á ensku.
Segðu okkur svolítið frá bókinni þinni með þínum eigin orðum, Antti.
„Græðarinn er glæpasaga og ástarsaga og þráðinn má orða í einni setningu: Maður leitar að týndri konu sinni í Helsinki sem er illa farin af loftslagsbreytingum. Söguhetjan Tapani Lehtinen er ljóðskáld og Johanna kona hans er blaðamaður. Þau hafa haldið í „eðlilegt“ líf eins vel og þau hafa getað en þegar Johanna týnist í miðri rannsókn á morðahrinu er eins og allt annað leysist líka upp.“
Hvar gerast bækurnar þínar?
„Fyrstu þrjár bækurnar mínar, og Græðarinn þar með talinn, gerast hér í Helsinki. Ég elska þessa borg. Hér var ég fæddur og hér hef ég búið mestallt mitt líf fyrir utan ársdvöl í Bandaríkjunum og hálft ár í Berlín. Fjórða bókin mín gerist þó að miklu leyti á herragarði við hafið um það bil sjötíu mílur frá Helsinki, en allar líkur benda til þess að ég snúi aftur til Helsinki í þeirri fimmtu. Sjálfsagt get ég ekki haldið mig burtu héðan þótt ég reyndi.“
Verðurðu hræddur við eigin skrif?
„Andrúmsloftið í Græðaranum er rosalega heimsendalegt. Sú saga gerist þegar við erum orðin áþreifanlega vör við afleiðingar loftslagsbreytinga. Samfélagsbyggingin er að hrynja og fólki hefur skilist að vandræðin séu ekki tímabundin heldur varanleg. Mér finnst þessi framtíðarsýn ógnvekjandi og hrikalegt að hugsa til þess ef vísindamenn hafa rétt fyrir sér með þessa þróun.“
Hver er þekktasta persónan sem þú hefur skapað og hvaðan kom hugmyndin að henni?
„Líklega er það Tapani Lehtinen, ljóðskáldið og aðalsöguhetja Græðarans. Hugmyndin að honum var bæði fagleg og málfarsleg. Með því að láta ljóðskáld segja glæpasögu þá gat ég notað málsnið sem er bæði nákvæmt og ljóðrænt. Svo fannst mér líka sniðugt ráð að láta skáld segja glæpasögu og það reyndist alveg rétt.“
Hvaða glæpasaga, sjónvarpssería eða kvikmynd hefur haft mest áhrif á skrif þín? „Mér hefur alltaf þótt gaman að rithöfundum sem hafa fléttað saman ólíkum þáttum í glæpasögur sínar. Þetta á bæði við Raymond Chandler sem er mjög bókmenntalegur og ekki líkt því eins harðsoðinn og sagt er, það sá ég þegar ég endurlas bækurnar hans, og Joyce Carol Oates sem er algjör meistari í að skapa spennu og tilfinningu um að eitthvað agalegt sé alveg að fara að gerast. Auðvitað á ég líka finnska áhrifavalda, þeir tveir sem hafa líklega haft mest að segja eru snillingarnir Veijo Meri og Juha Seppäla.“
Áttu eftirlætissenu eða setningu úr glæpasögu? „Ein flottasta upphafssetning sem ég veit um er í þeirri frábæru bók True Confessions eftir John Gregory Dunne: „Engin hringekjanna virðist vera í lagi lengur.“
Ertu agaður höfundur? „Já, sennilega er ég það. Ég hef verið atvinnuhöfundur í fimmtán ár. Ég hef samið auglýsingatexta og verið blaðamaður og nú er ég rithöfundur í fullu starfi. Á auglýsingastofunni lærði ég að vinna undir álagi og skila á réttum tíma. Það er fínt að hafa þá reynslu og ég er þakklátur fyrir hana. Ég reyni að vinna á hverjum virkum degi, oftast frá níu til fimm. En reyndar er sunnudagur í dag og ég er að vinna svo ekki passar þetta alltaf.“
Hvar skrifarðu? „Það er mismunandi. Ég er með skrifstofu hérna heima en oftast nær sit ég á sófanum í stofunni með fartölvuna mína á hnjánum. Og Græðarann skrifaði ég á mörgum ólíkum stöðum, til dæmis á kaffihúsum víðsvegar um Helsinki.“
Hvaða ráð geturðu gefið ungum höfundum? „Það jafnast ekkert á við að lesa. Maður verður að lesa allt – hreinlega hvað sem er! Og var það ekki sá ágæti Lawrence Block sem sagði eitthvað á þessa leið: „Skrifaðu það sem þig langar til að skrifa og gerðu ekki ráð fyrir neinu.“ Prýðisráð.“
Rafbækur eða pappír? „Pappír. Ég elska bækur: tilfinninguna, letrið, kápumyndina, hönnunina. Og auk þess sem þær eru fagrir gripir þá eru þær órafmagnaðar og þægilega hljóðlátar.“
Ef þú værir persóna í bók, hvernig myndirðu láta þig deyja? „Þetta er erfið spurning. Kannski er best að láta aðra ráða því.“
Og hvað myndirðu panta í þína hinstu máltíð? „Kannski væna sneið af nýbökuðu finnsku rúgbrauði með eystrasaltssíld maríneraðri í hvítlauk og olíu, eins konar finnskt tapas. Ég var raunar rétt í þessu að sporðrenna slíkri sneið, kannski datt mér hún í hug þess vegna …“





