Viðskiptavinir Forlagsins fá afslátt í leikhús

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Sofi Oksanen

Leikritið Hreinsun var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu þann 27.október síðastliðin og fá viðskiptavinir Forlagsins 700 króna afslátt af miðaverði á sýninguna.  Það eina sem þarf að gera er að láta vita í miðasölunni að þú sért viðskiptavinur Forlagsins. Hér færðu nánari upplýsingar um sýninguna.

Sýningin hefur fengið frábærar viðtökur og lætur engan ósnortin! Hreinsun er meðal umtöluðustu skáldverka undanfarinna ára. Leikritið var frumflutt í finnska Þjóðleikhúsinu árið 2007 og í kjölfarið skrifaði höfundurinn skáldsögu upp úr efni þess sem farið hefur líkt og eldur í sinu um Evrópu, víða orðið metsölubók og sankað að sér verðlaunum. Oksanen hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Hreinsun á liðnu ári. Skáldsagan kom út hjá Máli og menningu í fyrra og hefur notið mikillar hylli íslenskra lesenda.

Bókin Kýr Stalíns er nú einnig komin út hjá Máli og menningu. Kýr Stalíns er fyrsta skáldsaga Sofi Oksanen, opinská saga um líf þriggja kynslóða kvenna, um þá smán að vera annars flokks, um harkaleg skilin milli austurs og vesturs, um Evrópu sem valdhafar skiptu á milli sín í áratugi með óafmáanlegum afleiðingum. Aðdáendur Sofi Oksanen verða ekki sviknir af þessari bók.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd